Sýningar
Útflutningsráð er leiðandi í skipulagningu á þátttöku íslenskra fyrirtækja í vörusýningum og kaupstefnum ytra og gegna þær mikilvægu hlutverki í markaðssetningu fyrirtækja erlendis.
Starfsmenn Útflutningsráðs skipuleggja m.a. sýningar erlendis fyrir söluaðila sjávarfangs, framleiðendur á vörum og tækjum í veiðum og vinnslu, hugbúnaðarfyrirtæki, fatahönnuði, húsgagnahönnuði, hestaútflytjendur, ferðaþjónustufyrirtæki og flytjendur íslenskrar tónlistar.
Útflutningsráð hefur aðgang að gagnabönkum og ýmsum öðrum upplýsingum sem varða sýningar og þátttöku í þeim. Með ráðgjöf, fræðslu og upplýsingamiðlun tryggja starfsmenn Útflutningsráðs markvissa, fagmannlega og árangursríka framgöngu íslenskra fyrirtækja á sýningum erlendis.
Markmið
Ávinningur íslenskra fyrirtækja af sameiginlegri þátttöku í sýningum undir hatti Útflutningsráðs er mikill en öll stefna þau að sama marki:
* kynna vörur eða þjónustu
* efla ímynd fyrirtækisins
* treysta viðskiptatengsl og stofna til nýrra
* kynnast stefnum og straumum í atvinnugreininni
Nánari upplýsingar:
Berglind Steindórsdóttir forstöðumaður, berglind@utflutningsrad.is
Aðalsteinn H. Sverrisson verkefnisstjóri, adalsteinn@utflutningsrad.is
|
|
|
|
|
|









