Dagana 21.-24. janúar verður MATKA ferðakaupstefnan haldin í Helskinki. Er þetta ein mest vaxandi ferðakaupstefnan á Norðurlöndum og hefur fjöldi fyrirtæka sótt hana árlega.
Útflutningsráð skipuleggur í samvinnu við Icelandair og sendiráð Íslands í Moskvu vinnufundi í beinu framhaldi í Moskvu dagana 24. og 25. janúar. Verður þar annarsvegar fræðsla um viðskiptaumhverfið í Rússlandi og nágrannalöndum fyrir íslensk fyrirtæki og hinsvegar fundir með leiðandi ferðaþjónustuaðilum þar sem möguleikum Íslands sem bæði spennandi áfangastaðar og uppsprettu hönnunar verður komið á framfæri.
Eru fundirnir skipulagðir í samvinnu við Travel Trade Gazette Russia. Blaðið sem jafnframt er skipuleggjandi að einni stærstu ferðakaupstefnu í Moskvu, Luxury Travel Fair sem haldin er í mars mun gefa út 8 blaðsíðna sérrit um íslenska ferðaþjónustu í tilefni fundarins þannig að markaðs- og auglýsingagildi þátttöku er afar mikið.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@utflutnignsrad.is eða í síma 511 4000.





