Íslandsdagur í Mílanó
föstudagur 26. febrúar 2010Borgarstjóri Mílanóborgar hefur boðið til Íslandsdags föstudaginn 26. febrúar 2010. Af því tilefni mun Kristján L. Möller samgönguráðherra leiða sendinefnd fyrirtækja til borgarinnar.
Á dagskrá verða kynningar á samskiptum landanna og á íslenskri hönnun og nýsköpun. Jafnframt verða viðskiptafundir sem Útflutningsráð skipuleggur bæði með sérstaka áherslu á ferðaþjónustu á sviði funda og ráðstefna auk þess sem skapað verður tækifæri fyrir þau fyrirtæki sem eru áhugasöm að hasla sér völl á ítalska markaðinum, að koma sér á framfæri og funda með líklegum samstarfsaðilum.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@utflutningsrad.is, sími 511 4000.





