Fyrirtækjastefnumót á Fish International í Bremen
sunnudagur 21. febrúar 2010 - þriðjudagur 23. febrúarSjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár verður í fyrsta skipti skipulagt fyrirtækjastefnumót og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.
Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað sérstakt vefsvæði í tengslum við sýninguna þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum. Þau fyrirtæki sem skrá sig á vefinn og taka þátt í fyrirtækjastefnumótinu fá frían aðgang að sýningunni.
Fish International er nú haldin í 12. sinn. Sýningin, sem haldin er annað hvert ár, er ein sú stærsta í sjávarútvegi í Þýskalandi og mjög mikilvæg fyrir þýska markaðinn.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir hjá Útflutningsráði, erna@utflutningsrad.is, sími 511 4000.





