Útflutningsráð Íslands
Meginhlutverk Útflutningsráðs er að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að selja vörur sínar, þjónustu og þekkingu erlendis.
Útflutningsráð Íslands var stofnað 1. október 1986. Stjórn Útflutningsráðs skipa sjö menn sem valdir eru til tveggja ára í senn. Utanríkisráðherra skipar fjóra stjórnarmenn eftir tilnefningu fulltrúa atvinnulífsins í samráðsnefnd, sbr. ákvæði 3. gr. laga, og þrjá án tilnefningar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti.
Starfsmenn Útflutningsráðs eru 18 talsins.
Þjónustu Útflutningsráðs er skipt í fimm fagsvið:
Upplýsingar
Ráðgjöf og fræðslu
Sýningar
Nýja markaði
Fjárfestingarstofuna





