Gagnabankar
Íslandsstofa hefur aðgang að fjölmörgum gagnabönkum þar sem er m.a. að finna upplýsingar um markaði, neytendur og vörur, einstök fyrirtæki, tolla og mismunandi greiðslufyrirkomulag eftir löndum, aðstæður á mörkuðum, stjórnarfar og efnahagsmál.
Við úrvinnslu fyrirspurna nýta starfsmenn Íslandsstofu sér gagnabanka þessa við öflun upplýsinga. Fyrirtækjum og námsmönnum stendur einnig til boða að leita sér upplýsinga í gagnabönkum á skrifstofu Íslandsstofu. Að auki geta starfsmenn bent á og leiðbeint um notkun gagnagrunna sem öllum eru opnir á netinu.
Gagnabankar sem Íslandsstofa hefur aðgang að:
Eksport Handbogen
Útflutningshandbók Dansk Industri sem inniheldur umfangsmiklar, nákvæmar upplýsingar um reglur er varða útflutning og skjöl sem krafist er við útflutning til meira en 180 landa.
Euromonitor
Markaðsskýrslur um fyrirtækja- og neytendamarkað með upplýsingum um einstök lönd og fyrirtæki. Að auki er þar að finna upplýsingar um neytendur og neysluvenjur, vörutegundir og vörumerki og leiðandi fyrirtæki á neytendamarkaði, auk almennra upplýsingar um efnahag, atvinnumál o.þ.h. í 205 löndum.
Kompass
Upplýsingar um fyrirtæki um víða veröld m.a. um stjórn, veltu, starfsmannafjölda og þær vörur og þjónustu sem fyrir tækin hafa upp á að bjóða. Hægt er að leita eftir vöruheiti, atvinnugrein, landi eða heiti fyrirtækis.
Source OECD
Veitir aðgang að tölfræðiupplýsingum frá OECD-löndunum og ýmsum skýrslum og greinum frá OECD um stöðu og þróun efnahagsmála.
Worldtariff
Upplýsingar um tolla og vörugjöld á innfluttum vörum í ESB-löndum, Bandaríkjunum, Kanada, Brasilíu, Kína, Indlandi, Japan, S-Kóreu, Malasíu, Mexíkó, Sviss og Tævan.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir forstöðumaður, erna@islandsstofa.is.





