Geymsla og dreifing í Danmörku
11.9.2009
Ég rek fyrirtæki í dreifingu og flutningum í Árósum í Danmörku og hef einnig reynslu af innkaupum og lagerhaldi á Íslandi. Ég á gott samstarf við Samskip og Eimskip hér í Árósum og get boðið íslenskum fyrirtækjum að taka við vörum við komu til Árósa og geyma þær við ýmsar aðstæður; kulda, frost eða á hefðbundnum lager. Að auki get ég séð um dreifingu til kaupenda.
Hvet áhugasama til að hafa samband.
Kveðja,
Óskar Þór Hjaltason
Trigeparkvej 9
8380 Trige
Danmörk
Netfang: 24seventransport@gmail.com
Sími: 00 45 25613361
Íslandsstofu berst töluvert af fyrirspurnum erlendis frá, bæði í tölvupósti og bréfleiðis, auk þess sem starfsmenn Íslandsstofu fá jafnan margvíslegar spurningar á vörusýningum erlendis. Nokkuð berst einnig af óskum um samstarf við íslensk fyrirtæki í gagnagrunn Business Cooperation Database sem starfræktur er af Enterprise Europe Network. Þar geta íslensk fyrirtæki einnig komið á framfæri samstarfsóskum við fyrirtæki erlendis.
Nánari upplýsingar um Business Cooperation Database veitir Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is.





