Markaðsupplýsingar
Útflutningsráð hefur mikilvægu hlutverki að gegna við miðlun markaðsupplýsinga, bæði til íslenskra fyrirtækja í útflutningi og erlendra aðila sem áhuga hafa á viðskiptum við íslensk fyrirtæki.
Starfsmenn Útflutningsráðs búa yfir góðri þekkingu á því hvar hægt er að nálgast nauðsynlegar upplýsingar um markaðsmál og aðstoða fyrirtæki og einstaklinga, bæði hérlendis og erlendis, við öflun þeirra. Algengar fyrirspurnir eru um tolla, skatta, vörugjöld, reglugerðir, viðskiptaskilmála, framleiðslukröfur og stofnun fyrirtækja erlendis.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir forstöðumaður, erna@utflutningsrad.is





