Þjónusta
Útflutningsráð Íslands veitir íslenskum fyrirtækjum faglega aðstoð við kynningu og sölu á vörum, þjónustu og þekkingu erlendis. Þjónusta Útflutningsráðs er margþætt en hún felur í sér miðlun markaðsupplýsinga, ráðgjöf og fræðslu um markaðssókn erlendis, umsjón með þátttöku í sýningum og skipulagningu á ferðum viðskiptasendinefnda.
Útflutningsráð er aðili að Enterprise Europe Network sem er stuðningsnet ESB fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Fjárfestingarstofan er rekin af Útflutningsráði og iðnaðarráðuneytinu og hefur aðsetur á skrifstofu Útflutningsráðs.
Útflutningsráð er jafnframt stofnaðili ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ásamt Samtóni og Landsbanka Íslands. Skrifstofa ÚTÓN er hjá Útflutningsráði.





