Mikill áhugi á útflutningi hjá íslenskum fyrirtækjum
Viðskiptafulltrúar sem starfa við sendiráð Íslands víðsvegar um heim voru staddir hér á landi á dögunum í heila viku þar sem tíminn var notaður til að kynna sér nýjustu straumana í íslensku viðskiptalífi og hitta fyrirtæki. Á annað hundrað fulltrúar íslenskra fyrirtækja nýttu sér tækifærið til að koma og hitta viðskiptafulltrúana í skrifstofu Útflutningsráðs og ljóst að mikill áhugi er fyrir því að skoða möguleika á útflutningi hjá íslenskum fyrirtækjum.
Flestir þeir sem eiga erindi við viðskiptafulltrúana eru að leita eftir markaðsráðgjöf og aðstoð við að finna samstarfsaðila á markaði en einn helsti styrkleiki viðskiptafulltrúanna er þekking á sínum markaði og að koma á tengslum við réttu aðilana.
Útflutningsráð annast tengsl viðskiptafulltrúanna við íslenskt atvinnulíf og allar nánari upplýsingar um þjónustu viðskiptafulltrúanna veitir Andri Marteinsson andri@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





