Viðurkenningar til ÚH kvenna
FKA viðurkenningin 2010 var afhent í 11. sinn við hátíðlega athöfn í Perlunni 21. janúar. Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors hlaut FKA viðurkenninguna að þessu sinni.
Hvatningarviðurkenningu FKA 2010 hlaut Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical og þakkarviðurkenningu FKA 2010 hlaut Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Jazzballetskóla Báru, JSB.
Gæfuspor FKA 2010 hlaut fyrirtækið Stiki sem Svana Helen Björnsdóttir stýrir.
Þess má geta að þær Vilborg og Svana Helen hafa tekið þátt í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur, ásamt Útstím verkefninu, og Marín er þátttakandi í ÚH-verkefninu í ár.
Óskum þeim öllum til hamingju með viðurkenningarnar.
Vefsíða Félags kvenna í atvinnurekstri - www.fka.is





