Styrkur í stað jólakorta
22. desember 2009
Forvarnarsamtökin Blátt áfram hlutu styrk frá Útflutningsráði nú í ár. Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.
Allar nánari upplýsingar um samtökin má finna á www.blattafram.is.
Líkt og undanfarin ár sendir Útflutningsráð ekki hefðbundin jólakort til viðskiptavina sinna og velunnara, heldur er þeirri fjárhæð sem þannig sparast varið til að styrkja gott málefni.

Sendum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur með kærri þökk fyrir samstarfið á árinu.
Starfsfólk Útflutningsráðs Íslands.
Frá afhendingu styrksins:
Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs
ásamt Sigríði Björnsdóttur frá samtökunum Blátt áfram





